Hmm..Guðrún Eyja Erlingsdóttir
Já góðan og blessaðan daginn hér
Það er Guðrún Eyja sem heilsar ykkur hér á þessum yndælis föstudagsmorgni þann 29. febrúar sem þýðir að nú er hlaupár
..alveg ótrúlega skörp 
En jæja, um síðustu helgi fór ég heim til mömmu gömlu .. Okkur var svo boðið í afmæli til Jakobs litla frænda og svona voða gaman
Birta frænka kom norður með Egil kæró sem ég hef by the way aldrei hitt áður og jáá, þau eru bara nokkuð krúttleg saman
Held þetta sé bara par sem ætti að vera saman svona til frambúðar
Og ótrúlega gaman að hitta ykkur ;** ..við skutluðumst svo út á Tanga á bílnum hans Bjarna sem er örugglega 3-4 milljóna króna bíll og ég keyrði .. öööss, ég hlýt nú eitthvað að kunna að keyra fyrst ég komst á honum tvisvar á milli og rúntinn inná Tanga án þess að skemma hann
Hahah ;pHeyrðu svo núna er ég komin aftur í helgarfríí
Er að fara á Krókinn á eftir, hitta aaallt þetta frábæra pípúl og fara svo á árshátíðarball í kveeld
.. mm, osom !! Það verður skoh feiiittt djamm 
En.. Þar sem ég er að fara og svona þá verð ég að hætta þessu bloggeríii og fara að gera eitthvað af viti
Veriði blessuð og sæl

Lúlliiii ..Guðrún Eyja Erlingsdóttir
Ég held hreinlega að það sé bara kannski kominn tími á blogg :)Hef ekki bloggað síðan í fyrra .. haha :)
Er byrjuð í skólanum aftur eftir jólafríið og finnst það bara fínt .. var að verða gjörsamlega vitlaus á Hvammstanga þarna eftir allt jólafríið ! ..sweeeet að komast aftur hingað bara !
Fór í hálskirtlatöku 17. janúar og er rétt svo að byrja að ná mér núna ! Þetta var óógeðslegt maður .. Fór í aðgerðina þarna á fimmtudagsmorgni, sett á skurðarbekkinn um 10 og vaknaði um hálf tólf og var þá svo kool rugluð að það var bara ekki fyndið ! Vissi ekkert hvar í ósköpunum ég var, reif eitthvað sjúkrahúsdæmi út úr mér svo að það blæddi út úr mér og allt í þessa áttina, mjöög smekklegt ! ..
Lá eins og klessa uppí rúmi til hálf 7 um kvöldið á meðan litla skottið sem fór í þessa aðgerð á sama tíma og ég var komin fram úr um 4, farin að leika sér og éta eins og hestur þrátt fyrir risa sár í hálsinum og sársauka við að borða :) Greinilegt að þetta fer betur í þessi litlu kríli :) .. Lá í rúminu alveg gjörsamlega bakk fyrstu 11 dagana með 2 heimsóknum á sjúkrahúsið vegna ólýsanlegra og viðbjóðslegra verkja ! Fór á laugardeginum eftir aðgerðina, semsagt á þriðja degi niðrá slysó og fékk þar einhver voða sterk lyf til að ég gæti þá allavega sofið um nóttina, var góð á sunnudeginum og á mánudaginn var ég svo kvalin að mér var skutlað grátandi niðrá slysó og þar bað ég lækninn hálfpartinn um að leggja mig inn því að mér leið hrææðilega ! Lá inni þangað til á miðvikudag og eftir það fór nú allt að rétta af .. Hætti að taka verkjalyf í fyrradag og þetta bara gengur ágætlega :) ..Hlakka alveg hrikalega til að komast í ræktina aftur þegar þetta er almennilega gróið :) .. Og takk allir sem voruð svona góð við mig á meðan þetta var að ganga yfir.. og sérstaklega þú Halldóra.. Takktakk ;**
Ætla að taka mig á í náminu núna og standa mig vel ! Ætla að fara að fá góðar einkunnir aftur *-) ..
Er ekki í það mörgum fögum að það ætti að vera einhver vandi fyrir mig ..
Ma&pa voru víst að kaupa nýjan bíl þannig að ég ætla að reyna að skella mér heim um helgina og prófa kaggann.. Hahah (H)
Bylgja krútt átti afmæli í gær.. Varð sjálfráða stelpan ;) Til hamingju með það dúllan mín.. Er farin að sakna þín svoo mikið ;*** ..
Nenni ekki að blogga meira .. Bliiiizz !!
Jólin gengin í garð :)Guðrún Eyja Erlingsdóttir
Jæja krúttos ;* Þá eru þessi blessuðu jól loksins gengin í garð, mér finnst nú reyndar að þau hafi verið í síðasta mánuði en jæja .. Þetta er eitthvað fljótara að líða heldur en vant er
.. En allavega .. Ég vil bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla og vona bara að þið hafið það öll sem allra best yfir hátíðarnar
Guðrún kveður og bíður spennt eftir pökkunum
.. Jólakoooss
Bílpróóf ;)Guðrún Eyja Erlingsdóttir
Já fínt, já sæll, já fínt, já sæll, já fínt, já sæll, já fínt..
Pétur Jóhann er SNILLINGUR
Það er bara þannig
http://www.youtube.com/watch?v=XQCA40jS4ME&feature=related .. Bara snilld 
En góðir hálsar, þar kom að því
Í gærmorgun drifum við mamma og pabbi og Anna Dröfn okkur á Blönduós..
Við Anna tókum bílprófið og rústuðum því
Ég fékk ekki nema 2 villur 
Þannig að kjéllingin er bara komin með bílpróf og fór ein út að keyra í gærkvöldi og ég get svo svarið fyrir að það var bjánalegasta tilfinning sem ég hef fundið í laaangan tíma ! Fara bara ein upp í bíl og keyra af stað
Fannst alveg þvílíkt eins og ég væri að gera eitthvað sem ég mætti ekki
Gaman að þvíí ..Ég er semsagt búin að vera hérna heima í nákvæmlega viku.. Prófin byrjuðu 3. des en mitt fyrsta próf er ekki fyrr en 11. og síðasta er 13. ooog ég tek 4 próf sem þýðir.. Tvö erfiðustu á einum og sama deginum
ÆTLA að ná þessum prófum ! Kemur ekkert annað til greina !!!! Og Halldóra mín.. Reyndu nú að hafa ekki svona slæm áhrif á mig eins og venjulega þannig að það endi með því að ég læri ekkert .. Það vill oft verða svolítið erfitt þegar að við erum komnar tvær saman
Hahah
En neinei, ég er búin að sitja hérna heima og læra og læra þannig að það hlýtur nú eitthvað að vera komið inní hausinn ! .. Eins og flestir vita held ég þá er hún Lilja systir að koma á Ak í skóla eftir áramót og ég er farin að hlakka alveg pínu til þess skoh
En jæja, ég held ég fari að drullast til þess að læra meira.. Það er víst ekkert ,,Elsku mamma'' þessa dagana
.. Blogga meira seinna .. L8ter 
Afmælisbarn dagsins er Gunnar Sigfús og vil ég bara óska honum innilega til hamingju með daginn
Þetta gat ég jáá ;) ..Guðrún Eyja Erlingsdóttir
Jæja fólk :) .. Nenni ekki að blogga hérna núna en það eina sem ég ætla að segja ykkur er það að ;Ég fór í bóklega bílprófið í fyrradag og náði því !! :D Fékk 1&2 villur, þar sem að leyfilegt er að fá 2&5 :)
Mjööög ánægð með þetta og svo er það bara verklega núna á næstu vikum, ekki alveg búið að ákveða dag en ég vona að það verði ekki mjög langt í þaaað ;D ..
Jáh, ykkur finnst þetta svo gaman.. Ég veiit ;) :PGuðrún Eyja Erlingsdóttir
1. Miðnafnið þitt:2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Uppáhalds búð:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku saman?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla
26. Ef ég ætti einn dag ólifaðan, hvað myndum við gera saman?
27. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?
Helgarfrííí :DGuðrún Eyja Erlingsdóttir
Hallóów fólkz :) .. Þá er mín bara komin í helgarfríí :) .. Pabbi kominn heim, Lilja komin heim í helgarfrí líka þannig að við erum öll familian heima í fríii :) :**
Jææjjaaa.. Litla barnið hún ég, er að verða 17 ára eftir 3 daga .. Semsagt þann 30. október :D .. Seeem þýðir líka það að ég má taka bílprófið núna :D Geri það að öllum líkindum í vikunni sem er að koma :) Bóklega þá náttúrulega og svo kemur verklega.. ÞEGAR að ég næ bóklega *-) .. Vona að það verði nú bara eftir fyrsta bóklega ;) .. :P
Svo er hún Sóley Elsa náttúrulega svo sniðug að hún er bara búin að taka mig frá þann 10. nóvember.. Þá á ég víst að vera driiver fyrir hana og Helgu Rós.. Hahah, ekki eins og ég sé eitthvað að þoora því ;P Kemur í ljós hvort ég verð komin með prófið þá :P HAHA
Lilja systir og Bragi frændi áttu afmæli þann 21. október og urðu bæði 21. árs :) Til hamingju með það mýslur :* ..
Helga frænka á Vopnafirði og Akera Ivan eiga svo afmæli á morgun :) Allir að eiga afmæli núna ;) Yeeeaahh :D ..
Verð svo að fara að skella mér á Krókinn svona eins og eina helgi eða svoo.. Farin að sakna allra vinanna á Króknum :| .. Gengur ekki svona ..
Amma og afi voru að fá sér óóógeðslega sætan voffa :b .. Á stærð við kött ef það nær því þá og með smá svona skegg og svona og shiiit .. þetta dýr er sætast í heimi .. fæ að öllum líkindum að sjá það um helgina !! Vííjj ;D ..
Lilja var að kaupa sér kanínu.. Þessi dýrasjúklingur skoh.. Allavega, ógeðslega sæt brún kanína, svona pínulítil ennþáá.. og með svona "ljónakraga" .. víst einhver ljónategund eða eitthvað =) ..
En jæja.. nenni ekki þessu bloggeríi meira núna.. Nú er það bara að fara að læra undir bílprófið ;)
- Bið að heilsa ykkur í bili ;** ..
Ahaaa ;] ..Guðrún Eyja Erlingsdóttir
Hallóóó fallega fólk ;D .. Ég er liifandi =) :P Óóótrúlegt en satt ;PHef nú ekki verið sú duglegasta við að halda þessari síðu uppi en ég ætla nú samt að skjóta inn einu & einu svona við og við ;) ..
Jáh.. Ég er víst bara komin á Akureyri í skóla.. Alveg óótrúlega gaman og gott að vera þar :D Frábærir vinir sem ég á þarna, skemmtilegt í skólanum, ógeðslega dugleg í ræktinni (nema þegar það er of mikið að læra) og bara name it !! ;) Allt voða goott :) ..
En.. ég er nú alveg búin að komast að því að það getur víst allt gerst :O
Ég kom semsagt heim úr skólanum núna einn daginn í vikunni og þá rak ég augun í rúðuna i herberginu mínu !! Og viti menn.. það var STÓR spruungaa í henni, nánast þvert yfir hana og svo slatta upp líka :| ..
Er ekki alveg að skilja þetta dæmi þar sem að rúðan var EKKI svona þegar við fórum í skólann um morguninn, alveg pottþétt því að ég sá það.. og það hafði enginn komist inní herbergið frá 8-1 því að við Finna vorum báðar í skólanum og herbergið læst og það sem meira var að rúðan var sprungin innanfrá !! Allavega, fór niður í lobby og sagði konunni þar frá þessu þannig að rúðan var límd og ætli það sé ekki verið að bíða eftir nýrri rúðu núna þannig að það sé hægt að skipta um ! Ætla síðan rétt að vooona að við fáum trygginguna fyrir herberginu borgaða þrátt fyrir þetta þar sem þetta vorum náttla enganveginn við sem rústuðum rúðunni !!
Jæjaa.. svo eru ekki nema 17 dagar í að ég eigi afmæli sem þýðir: 17 dagar í bíílpróf :D !! Ekki slæmt haa? .. :P Ætla skoh að ná þessu í fyrstu tilraun.. Sem þýðir bara lestur og lestur og meiri lestur !! :D
Er farið að langa svoldið til þess að vinna aðeins með skólanum.. Var að tala við hana Sollu mína í fyrrakvöld og hún benti mér á að tala við þau á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri ! Langar ofsalega mikið til að fara að vinna á svona stað í aðhlynningu og venja mig við fyrir næsta sumar .. :) =) .. Örugglega voða skemmtilegt & gefandi starf ! Pottþétt :) Kemur í ljós hvað ég geri með þetta ..
En jæja ! Kannski ég hætti þessu bulli, alveg komið nóg í bili held ég ;) ..
-Guðrún kveður í gúddí fýling og hlakkar til þess að fara á Akureyrina á morgun og byrja að taka vel á því í ræktinni aftur eftir viku frí vegna próflesturs og ýmissa fleira :O .. :) Bless í bili ;*
Haha.. Minns er löt við að blogga :PGuðrún Eyja Erlingsdóttir
Jaaahháá :P Góðan og blessaðan daginn :) Í fréttum er þetta helst :
Ég nenni eki að blogga :') Kannski maður hætti bara með þessa skíta síðu :)
Hvað finnst ykkur um það? :D
Þetta er ótrúlegt líf !! ..Guðrún Eyja Erlingsdóttir
Já góðan daginn ! .. Það er Guðrún sem heilsar hér, miðvikudaginn 23. ágúst :) ..Langaði reyndar að byrja á því að tala aðeins um það hversu ósanngjarnt og ljótt lífið getur verið ! Ég var að fá þær fréttir frá frænku minni í gærkvöldi að 2. ára barn sem hún þekkir var að deyja núna í fyrrinótt ! Búin að vera mjög erfið barátta við krabbamein .. Af hverju eru þesssir litlu sólargeislar teknir í burtu frá fólkinu sínu á þennan hræðilega hátt? Mér finndist eðlilegra að þetta gamla fólk sem að bókstaflega bííður eftir því að fara, fengi það.. Liggur kannski í rúminu allan ársins hring og getur ekkert sjálft, eki borðað, eki snúið sér í rúminu og svo framvegis ! Mér finnst þetta hræðilegt.. skil eki hvers vegna lífið getur verið svona ógeðslega grimmt ! :( Ef maður bara gæti gert eitthvað fyrir þetta aumingjans fólk.. get ekki einu sinni lýst því hvað ég finn til með því :/ Auðvitað vildi maður helst af öllu getað læknað litla snáðann og látið þau fá hann aftur, en þetta er víst ekki svo auðvelt.. Því miður :(
En að öðru .. Það er bra komið að þessu .. HAA!? ;) Ég trúi því eki, en ég er að fara á AKUREYRI Á MORGUN ;) :D Bwahaahahaha :D Get bra eiginlega eki beðið mínútu lengur ! Þetta verður stóórmagnað ;D Verða með Finnzunni sinni í herbergi :D Úff, það verður gaman.. loksins aftur ;) :D Er búin að bíða eftir þessu síðan um jóólin ! Ágæætis tími :P
En jááá.. svo má nú eki gleyma því að gellan hún Finna var að fá bílprófið ;) Finna þú ert aaagalegur tappi ;) Til hamingju ástin mín :) :**
Fór suður á menningarnótt um daginn og það var æðislegt :) Byrjaði nú á því að fara í heimsókn til Evu og Tristans ;) Tristan orðinn voða stór strákur og aaalgjört krúttípútt ;) Knúsaði mann fram og aftur og kyssti mann.. ofsalega sætur í sér :) og svo fer náttla að styttast í litla bumbubúann ;) .. Já allavega, þau skutluðu mér svo seint um kvöldið í partý hjá ungri stúlku sem heitir Lilja Björns ;) :P Það var fínt :) ..
Svo ákvað kjééllan að labba niður í bæ og hitta hann Egil frænda sinn :D Fórum á djammið saman :D Helvíti gaman, hef aldrei farið neitt út með kvikindinu áður ;D .. Takk fyrir allt Egill minn.. Þú ert bestur :) :) Lilja kom svo reyndar aðeins til okkar líka :) Fórum heim klukkan 7 um morguninn :$ Kannski aaaaðeins of lengi verið að skemmta sér :P En þar sem ég var nú blááedrú, meira en sumir geta sagt, þá er þetta nú fyrirgefanlegt held ég :) !
Lilja systir er semsagt flutt í bæinn :) Er held ég bra voða ánægð með það allt saman, vinnur í bakarameistaranum í Suðurveri og allt gengur bra vel :)
Sóleyin mín flutti á Akureyri á sunnudaginn :) Er að leigja þarna íbúð með Helgu vinkonu sinni :) Ég verð nú að kíkka þangað á morgun þegar ég kem á Akureyrina og vita hvernig þetta er allt saman hjá þeim ;) :P
Þarf að fara á Krókinn með pápa í dag til þess að sækja ísskápinn litla á vistina og fara með hann á Akureyris á morgun ;D ... Komum líklega við á Stóru-Giljá og þá get ég kíkkað á Sigurveiguna mína ;* ;D Haha !
En jæjaa.. Held að þetta sé orðið nóg í bili !
-Guðrún sem er að biiilast úr tilhlökkun :P Geeetur eki beðið í heilan sólarhring í viðbót ;D .. HAHA !! :P
